19.6.2008 | 23:07
19 júní
Nú er hinn bleiki dagur 19 júní senn á enda, margt hefur verið í boði í tilefni dagsins ég fór á Hallveigarstaði þar sem Kvenréttindafélagið bauð konum til mótöku eftir göngu undir leiðsögn Auðar Styrkársdóttur forstöðumanns Kvennasögusafnsins gengið var frá Bríetarbrekkur um kvosina að Hallveigarstöðum þar sem móttakan beið þeirra kvenna sem fóru í gönguna. Nýr formaður Kvenréttindafélagsins hélt erindi ásamt Steinunni Valdísi Óskarsdóttur þær ræddu um stöðu kvenna og ný jafnréttislög. Ritstjóri 19 júní Steingerður Steinarsdóttir hélt skemmtilegt erindi um blaðið og efni þess.
Ég fór einnig í kvennamessu ásamt elstu dóttur minni við mættum að vísu aðeins of seint þar sem við vorum að koma úr afmæli systursonar míns. Margrét Sverris bauð gesti velkomna, Áslaug Brynjólfsdóttir frá kvenfélagasambandinu las ritningalestur, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra predikaði og var tíðrætt um náttúruna og umgengni manns við hana með tilliti til Guðs sem vil að flóra lífs sé sem fjölbreyttust. Að lokum fór Auður Eir með Guðs orð og hvatti konur til að vera hugrakkar, sem er gott veganesti frá þessum degi við þurfum hugrekki þeirra kvenna sem á undan eru gengnar til að halda okkar daglegu baráttu, hversu lítil eða mikil baráttan er.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.